ForsíðaNemendurUm skólannTónberg
Tónlistarskólinn á Akranesi
Forsíða :: Nemendur :: Deildir
Prenta vefsíðu
Senda á Facebook

Deildir skólans.

Blásaradeild, málm og tréblásturshljóðfæri:

Undir málmblásturshljóðfæri falla t.d. trompet, kornett, básúna, horn, baritonhorn og túba og á öll þessi hljóðfæri er kennt í TOSKA.

Í flokk tréblásturshljóðfæra falla t.d. þverflauta, klarinett og saxófónn og á þau er einnig kennt í TOSKA.

Yfirleitt er hægt að hefja nám á níunda aldursári. Í upphafi náms er lögð áhersla á að nemendur læri að beita líkamanum á áreynslulausan hátt og á rétta öndun. Nemendur læra grunnatriði í tónfræði, tónheyrn, nótnalestri og hrynþjálfun. Námið fer fram í einkatímum en einnig er lögð áhersla á að nemendur taki þátt í fjölbreyttu samspili.

Á öll ofnagreind hljóðfæri geta nemendur tekið grunn mið og framhaldspróf samkvæmt Aðalnámsskrá tónlistarskóla. Nemendur geta leigt hljóðfæri frá skólanum fyrstu þrjú árin.Ýmsir samspilshópar eru starfræktir í tenglum við nám í blásaradeild.

 

Hljómborðshljóðfæri: 

Kennt er er á hljómborðshljóðfæri  samkvæmt Aðalnámsskrá tónlistarskóla gefin út af Menntamálaráðuneytinu 2002. Námið skiptist í 3 hluta: grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf. Þessi próf fara fyrir prófanefnd tónlistarskólanna. Einnig höfum við áfangapróf innan skólans : G1, G2 og M1.

Boðið er upp á kennslu á píanó, hljómborð og harmonikku. Æskilegt er að nemendur hafi viðunandi hljóðfæri til æfinga heima hjá sér. Hægt er að leigja harmonikkur fyrstu árin í náminu.

Fullt nám er 1 klukkustund á viku og eru byrjendur 2var sinnum í viku í 30 mínútur í senn. Markmið kennslunnar er að nemendur nái færni á hljóðfærið sem nýtist þeim til þátttöku í sem fjölbreyttastri tónlistariðkun.

 

 

Stengjahljóðfæri:

Kennt er á fiðlu og kontrabassa. Í tengslum við strengjadeildina eru starfandi yngri og eldri sveitir sem vinna mest með þjóðlagatónlist.

 

Slagverk:

Kennt er á trommusett og nemendum kynnt ýmis önnur ásláttarhljóðfæri.

Leitast er við að nemendur nái tökum á undirstöðuatriðum trommuleiks, auk samhæfingar handa og fóta. Færni í þessu tvennu er síðan hagnýtt til að fást við ýmsa tónlistarstíla s.s. jass, fönk, reggae, og nokkrar tegundir suðuramerískrar tónlistar. Nótnalestrarþjálfun býr nemendur undir þátttöku í samspili, jafnt lúðrasveitum sem hljómsveitum af öðrum toga.

Lögð er áhersla á tengsl námsins við sögulegar rætur trommusettsins, auk þess sem nemendur fá að kynnast framandi slagverkshljóðfærum á borð við tabla, udu, djembe og hljóðfæri Mið og Suður-Ameríku. Fjallað er sögulega um helstu strauma vestrænnar alþýðutónlistar síðustu aldar og afrek færustu trommara, jafnt í nútíð sem fortíð, dregin fram.

 

Söngdeild:

Allmennt kenndur klassískur söngur en einnig er nú kenndur rythmiskur söngur.

 

Forskóli:

Undirbúningsdeild fyrir frekara tónlistarnám ætluð nemendum úr 1. og 2. bekk grunnskólans.

 

Sérdeild:

Kennsla einstaklinga með sérþarfir. Tónleikur.

 

Tónfræði,tónmenntadeild:

Kennt er samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna.

 

 

 

Vissir þú að Gunnar Sigurðsson bæjarfulltrúi var trommuleikari í hljómsveitinni Sveitó á Blöndósi á 7. áratug síðustu aldar. 

 
Tónlistarskólinn á Akranesi | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími: 433-1900 | Senda fyrirspurn