Fjölmenningarvefur
Tónlistarskólinn á Akranesi ( TOSKA ) var stofnaður 4.nóvember 1955. Markmið hans átti að vera það að veita almenna tónlistarfræðslu og að vinna að eflingu tónlistarlífs á Akranesi. Mikið vatn er til sjávar runnið síðan þá og margt breyst til batnaðar og ber þá hæst að nefna hið glæsilega húsnæði sem skólinn flutti í haustið 2007 að Dalbraut 1. Í skólanum er að finna glæsilegan aðbúnað til tónlistarkennslu og er óhætt að fullyrða að aðstaðan í skólanum er draumur sérhvers tónlistarkennara og nemanda. Það sem gefur skólanum algera sérstöðu er fjölbreytileikinn í skólastarfinu. Skólinn býr yfir vel menntuðu starfsliði með ólíkan bakgrunn og starfsreynslu sem tekst að gera skólann í heild sinni að skapandi og litríkri listastofnun. Sterk áhersla er lögð á að koma til móts við þarfir hvers og eins hvort sem umsækjendurnir eru ungir eða aldnir og að gefa þeim góða innsýn í heim tónlistarinnar.
Einn stærsti kostur skólans er að nemandinn getur stundað einkanám þ.e. verið einn með kennaranum í hálfa eða heila kennslustund á viku Þannig gefst bæði nemanda og kennara kostur á að haga náminu með þeim hraða sem samræmist hæfileikum hvers og eins. Samleikur er ekki síður mikilvægur í starfi skólans en honum má ekki rugla saman við reiti einkakennslunnar. Það hefur verið skýr skoðun flestra kennara skólans að hópkennslan sé viðbót á einkakennsluna þar sem við á. Áherslan á einstaklinginn gerir hópinn sterkari.
Skólinn leggur mikla áherslu á samleik og samsöng nemenda en í skólanum eru t.a.m. starfandi blásarasveitir, strengjasveitir, marimbusveit, slagverkshópar, sönghópar og margir smærri samspilshópar með ólík hljóðfæri. Þessir margbrotnu tónlistarhópar hafa lagt sitt af mörkum í gegnum tíðina við að lífga upp á bæjarlífið á Akranesi jafnt innan þess sem utan með skemmtilegum og skapandi tónlistarflutningi. Þannig hafa allir lagst á eitt jafnt nemendur sem kennarar við að gera skólann sýnilegri og að sýna hversu miklvægur hlekkur tónlistarskóli er í samfélaginu.
Á fyrstári tónlistarskólans voru nemendur 23. Eini starfsmaður skólans sem gengdi bæði hlutverki kennara og skólastjóra það ár var frú Anna Magnúsdóttir.
Fyrir skólaárið 2008-2009 voru skráðir í skólann alls 323 nemendur. Alls eru starfandi 23 kennarar við skólann auk skólaritara og ræstitæknis. Kennsla fer að mestu leyti fram í aðalhúsnæði skólans en einnig er kennt í tveimur grunnskólum Akraneskaupstaðar þ.e. Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Einnig er kennt í Heiðarskóla sem stendur við Leirá í Borgarfirði. Góð samvinna er við grunnskólana um kennslu nemenda þeirra á skólatíma.
Tónlistarskólinn á Akranesi hefur ætíð haft að leiðarljósi að gera námið líflegt og skemmtilegt en um leið krefjandi. Í skólanum eru starfræktar átta deildir og er kennt á öll möguleg hljóðfæri allt frá klarinetti til rafmagnsbassa enda er bæði dægurlagatónlist og sígildri tónlist gert jafn hátt undir höfði í skólastarfinu.
Samstarf milli hinna ýmsu deilda í skólanum fer ört vaxandi og sýnir hversu tónlistarnámið getur verið skemmtilegt og skapandi.
Deildirnar eru þessar :
Blásaradeild
Forskóladeild
Píanódeild
Sérdeild
Slagverksdeild
Strengjadeild
Söngdeild / klassísk / rythmísk
Tónfræði/tónmenntadeild
Núverandi skólastjóri tónlistarskólans er Lárus Sighvatsson.
Aðstoðarskólastjóri er Skúli Ragnar Skúlason.
Deildarstjórar eru : Blásaradeild : Halldór Sighvatsson
Píanó-forskóla - og tónfræðídeild : Friðrik V.Stefánsson.