ForsíðaNemendurUm skólannTónberg
Tónlistarskólinn á Akranesi
Forsíða :: Tónberg :: Á döfinni
Prenta vefsíðu
Senda á Facebook
28. febrúar 2012 10:24

Ég hef lifað mér til gamans

Helgina 9.-10.mars nk. mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps leggja land undir fót og flytja fólki sunnan heiða söng- og  leikverkefnið  “ Ég hef lifað mér til gamans”.  Dagskráin  byggist á lífshlaupi Björns Pálssonar, stórbónda og alþingismanns á Ytri Löngumýri, en Björn var litríkur persónuleiki og þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Textahöfundur  er Jóhanna  Halldórsdóttir, Brandsstöðum í Blöndudal.

Í för með kórnum verður hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar og valinkunnir lesarar sem kynna Björn og segja af honum ýmsar sögur.  Þar kemur margt forvitnilegt fram  því á langri æfi  glímdi Björn  við lögspekinga, póiitíkusa og náttúruöflin og hafði jafnan sigur. Gamansemi og stríðni Björns var landsfræg og  verður þeim eðlisþáttum hans gerð góð skil í dagskránni.

Söng- og leikverkefnið  verður flutt í Tónbergi á Akranesi föstudagskvöldið 9. mars kl. 20.30 

meira...
20. maí 2010 08:00

Vortónleikar Þjóðlagasveitarinnar

Vortónleikar ÞJÓÐLAGASVEITARINNAR fimmtudaginn 20.maí kl 20:00. Miðasala í verslun Eymundsson Akranesi. Allir velkomnir ! 

meira...

Vissir þú að Gunnar Sigurðsson bæjarfulltrúi var trommuleikari í hljómsveitinni Sveitó á Blöndósi á 7. áratug síðustu aldar. 

 
Tónlistarskólinn á Akranesi | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími: 433-1900 | Senda fyrirspurn