Hlutverk og markmið Tónlistarskólans:
Í aðalnámskrá tónlistarskóla, útgefinni af menntamálaráðuneyti í febrúar 1996 segir m.a.:
"Við gerð skólanámskráa er tónlistarskólum ætlað að taka mið af stefnumörkun og meginmarkmiðum aðalnámskrár tónlistarskóla og greinanámskráa, ásamt því að sinna staðbundnum og sérhæfðum markmiðum. Skólanámskrá mun taka mið af aðstæðum á hverjum stað og einstakir skólar hafa svigrúm til að leggja eigin áherslur í skólastarfinu."
Skólanámskrá Tónlistarskólans á Akranesi er ætluð kennurum, foreldrum og nemendum auk bæjaryfirvalda sem veita fé til skólans. Skólanámskrá getur aldrei orðið endanleg heldur þarfnast hún stöðugrar endurskoðunar. Í stefnumótun fyrir Tónlistarskólann á Akranesi frá 1. apríl 1996 segir:
"Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi er að stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska."
Meginmarkmið
- Að stuðla að aukinni hæfni nemenda til að flytja, greina og skapa tónlist, ásamt því að hlusta á og njóta hennar.
- Að stuðla að auknu tónlistarlífi í bænum i samvinnu við aðrar mennta- og menningarstofnanir.
- Að skólinn eigi á að skipa áhugasömu og hæfu starfsfólki.
- Að eiga gott samstarf við foreldra / forráðamenn nemenda.
- Að leggja áherslu á hagkvæmni í rekstri.
Námskröfur / heimavinna
Tónlistarnám byggist á góðri samvinnu nemanda og kennara. Nemandi nýtur tilsagnar kennarans að meðaltali eina klst. í viku (2x30 mínútur) og fer því árangur námsins eftir því hversu vel nemendur stunda heimavinnu sína. Mikilvægt er að nemandinn fái góðan stuðning og hvatningu heima fyrir. Árangursríkara er að ungir nemendur æfi sig oftar og skemur í senn en sjaldnar og lengur. Mikilvægt er að nemendur stundi námið af samviskusemi og standist þær kröfur sem skólinn gerir.
Próf / námsmat
Hljóðfæranám og grunnnám í fræðigreinum (tónfræði og tónheyrn) eru metin með svokölluðu stigsprófi. Aðalnámskrá tónlistaskóla mælir fyrir um þrjá megináfanga í tónlistarnámi: Grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf (sbr. aðalnámskrá bls. 16-17). Það er misjafnt hversu fljótt nemendur geta tekið áfangapróf og er það mat kennarans hvenær viðkomandi nemandi er tilbúinn. Algengast er að prófin fari fram á vorönn. Á hverju vori fá nemendur afhentan vitnisburð. Þar kemur fram einkunn úr hljóðfæraprófi, fræðigreinum, fyrir iðni og mætingu. Einnig fylgir með stutt umsögn hljóðfærakennarans um nemandann. Um nám á listabraut er vísað í námsvísi Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi