Innritunarreglur fyrir Tónlistarskólann á Akranesi
1. Nemendur sem stunda nám við Tónlistarskólann á Akranesi fá í byrjun apríl ár hvert bréf frá skólanum þar sem þeim er boðið að endurnýja námsdvöl við skólann. Nemendur skulu staðfesta umsókn um skólavist næsta ár fyrir 10. maí.
2. Í byrjun maí skal auglýsa eftir nýjum umsóknum um skólavist og á sama tíma á endurnýjun á umsóknum þeirra sem eru skráðir á biðlista eftir námi við skólann að eiga sér stað.
3. Umsókn um nám í skólanum gildir eingöngu eitt skólaár og þarf að endurnýja árlega.
4. Við endurnýjun á umsókn skapast forgangur miðað við þá sem eru að sækja um nám í fyrsta sinn.
5. Við innritun í skólann geta stjórnendur í undantekningartilvikum vikið frá þessum reglum ef gildar ástæður eru til.
6. Ef umsækjendur eru óánægðir með afgreiðslu umsóknar geta þeir óskað eftir umfjöllun skólanefndar Tónlistarskólans á Akranesi.